Fyrirtækið
Íslensk almannatengsl ehf. er ráðgjafarfyrirtæki sem býður upp á þjónustu á öllum sviðum markaðs- og upplýsingamála. Starfsmenn ÍA búa yfir hagnýtri reynslu úr fjölmiðla- og viðskiptaheiminum, auk menntunar í fjölmiðlun og almannatengslum. Viðskiptavinir ÍA geta því treyst á fagleg vinnubrögð þegar þeir leita til fyrirtækisins um lausnir á fjölmörgum sviðum almannatengsla. Systurfyrirtæki Íslenskra almannatengsla, Auglýsingastofan Grænn, býður upp á lausnir í auglýsingagerð og grafískri hönnun. Starfsmenn Íslenskra almannatengsla eru meðlimir í Almannatengslafélagi Íslands. |